Borðar þú þegar þú ert ekki svangur/svöng? Heldur þú áfram að borða óhóflega án þess að kunna á því skýringar? Finnur þú til sektar og eftirsjár þegar þú hefur borðað yfir þig?

Margir geta svarað þessum spurningum játandi. Þar á meðal ég. Ég fékk lausn frá matarfíkn með því að fara á fundi hjá OA og líf mitt hefur breyst til batnaðar. OA tekur á matarfíkn líkt og AA tekur á alkóhólisma. Ef þú telur þig eiga vandamál við að hætta að borða eða þú borðar mikið í einrúmi þá er þetta líka lausn fyrir þig. Prófaðu að taka sjálfsprófið á www.oa.is :)