Ég er líka með lupus og veit að þetta er voðalega leiðinlegt og erfitt, en ég held að það séu margar leiðir til að gera sig betri. Númer 1 er mataræðið. Eg er ekki með útbrotin, en með mjög mikla liðverki. Ég er miklu hressari þegar ég passa mig að sleppa geri, hveiti og soleiðis. Einnig verður maður að reyna að hreyfa sig, þó það sé erfitt. Ertu að taka einhver lyf ?? plaquenil eða eitthvað. Ég er á því og það virkar upp að einhverju marki. Ég veit líka að það er leiðinlegt að mega ekki fara í sól, en þá er bara að skella á sig smá brúnkukremi…reddar öllu!!
Ég hef líka verið að kíkja á nokkrar óhefðbundnar leiðir og hér er að koma upp heimasíða sem á er margt um þetta….. hún er reyndar enn í vinnslu, þetta kemur allt.
www.heilsumidstod.is