Kannast ég við þetta… en þetta getur líka verið öfugt… ef manni líður illa, verður maður veikari fyrir… veiki! Líkami minn og sál eru greinilega það vel tengd að bara síðan að ég skildi, er ég búinn að fá sólarhringsflensu (sem endist vanalega í 3 til 4 vikur hjá mér), ég er búinn að fá þvílíkt þursabit í bakið, og núna er ég kominn með flensu aftur… ég held það að þetta sé tengt andlegri vanlíðan. Maður finnur allavegana meira fyrir því að maður er veikari fyrir veiki ef manni líður illa… Látið ykkur líða vel…
Gromit