Ég ætla að lýsa yfir einlægum stuðningi og aðdáun á þeim sem ætla í “bumbu-box”!!! Núna er tíminn til þess að koma sér í gang… Það er bara málið að byrja smátt… því margt smátt gerir eitt stórt! Setjið ykkur bara raunhæf markmið, og það er bannað að fara í kók- eða nammisvelti!!! Já, þetta hljómar kannski soldið vitlaust, en málið er að ef að þið eruð að neyta mikils af þessu þá er bara að minnka við sig, annars verður þörfin á sykri svo mikil að það verður til svona í-lotu-lotugræðgi, sem þýðir það að þið étið kannski vikuskammt á hálftíma!!! Endilega að spyrjast fyrir, koma sér í áætlanir (hjá heilsuræktum), og bara ekki vera hrædd… það verður enginn grannur á 2 vikum! Það er ekki hægt, svo er bara að láta okkur vita hvernig gengur og monta sig soldið, vegna þess að maður sjálfur er besta sparkið í rassinn, þegar maður er að taka sig í gegn! pppprrrkkk!!!
Gangi ykkur vel… *aðdáun*
Gromit