Ég er alltaf að reyna að hætta að reykja (já, ein af þeim). Núna á ég hálfan pakka eftir og ætla ég mér að klára hann og einbeita mér svo að áskorunarkeppninni í Veggsport.
Var í fitumælingu og þolmælingu í morgun. Eftir þolþjálfunina sagði maðurinn sem mældi mig: “Þú reykir!” Hann vissi það strax. En núna er það bara að hætta að reykja og fara 5 sinnum í viku þarna uppeftir ef maður vill vinna London ferðina í maí.
Gangi mér vel….
Vona að ég geti skrifað í maí að ég hafi unnið ferðina,