ég er 15 ára strákur og ég er með eitt vandamál. Það eru svona hnúðar eða eitthvað hart allavegana í brjóstunum á mér. Þetta er bæði mjög óþægilegt ef að brjóstin snerta eitthvað og síðan er þetta líka ljótt, það kemur smá bunga út úr geirvörtunni.

ég spyr, er þetta eðlilegt hjá unglingum, ég man að skólahjúkkan sagði að strákar myndu fá smá brjóst en ég veit ekki hvort að þetta er það.