Hæ, öll sömul. Við eigum flest í baráttu við að halda aftur af aukakílóunum og margar leiðir eru reyndar. Ég ætla ekki að segja að eitt sé betra en annað en vil benda á tvo punkta í baráttunni við aukakíló. Í fyrsta lagi skyr, er rosalega saðsamt og dugir rosalega lengi. Í löngum vinnutörnum hef ég t.d notað KEA skyrið eða SKYR.IS dósirnar, þessar litlu og ég fer ótrúlega langt á þeim. Ég hefði aldrei trúað því áður en ég prófaði, en þetta eyðir hungurtilfinningunni og það endist lengi. Margar bragtegundir eru til. Ég hef misst nokkur kíló með þessu. Í öðru lagi og kannski er það margtuggin tugga og allir vita, en ég segi af eigin reynslu að gosdrykkir eru algjört eitur fyrir þá sem að byrja að safna á sig. Ég fór í gosbindindi og strax sögðu nokkur kíló bless. Þetta vita nú kannski flestir sem að vilja vita það, en þetta með skyrið er gott ráð og það er líka ódýrt á þessum dýrtíðartímum. Kv september.