Jæja núna ætla ég að segja ykkur frá 3 daga helvíti með ZitroMax.

Þetta byrjaði þannig að ég varð kvefaður og veikur með hita í 1 dag. Þetta lagaðist fljótt og ég bara hélt áfram mínu lífi í 2 vikur. Þá er ég að horfa á video í rólegheitum heima og alltíeinu verður mér ískalt og líður næstum yfir mig. Ég var nokkuð smeikur og vissi ekkert hvað var í gangi hálf vankaður. Fór til læknis daginn eftir og hann greindi það að ég væri með stíflaðar ennisholur. Það gat vel passað þarsem að ég var með soldinn þrýstinn á hausinn á mér útaf slími. Jæja hann lætur mig fá einhver flottan 3 daga kúr sem samanstendur af 3 500mg ZitroMax töflum(sem kosta 2700kr!!!). Ég fer heim og er nokkuð ánægður með að þetta sé bara eikkað slímrugl en ekki eikkað alvarlegt. Tek fyrstu töfluna og fer að glápa á sjónvarpið. Svo seinna um kvöldið þá fer mér að líða ógeðslega illa (svimi, sljóleiki og einbeitingarleysi). Gat varla sofnað og svaf svo bara í 5 tíma (vanur að sofa í 9) og vaknaði eldhress. 30 mín seinna byrjaði mér að líða mjög illa og varð aftur vankaður. Svo um kvöldið þennan dag fékk ég þann mesta og ógeðslega niðurgang sem ég hef á æfinni fengið. Leið svona helmingi verr heldur en deginum á undan. Jæja 3 dagur byrjar (eftir 6 tíma svefn) mér líður svona alltílagi meðað við aðstæður. Þarf gjörsamlega að pína mig til að taka 3ju pilluna og varð ready fyrir ennþá meira PAIN. Jújú það kemur aftur, niðurgangur og ógeðslegheit, bara svipað og annan daginn. Jæja 4 dagur rennur upp engin ný pilla og ég finn að þetta blessaða slím er byrjað að renna úr hausnum á mér (stanslaus þrýstingur á haus, og bólga í hálsi búið að pirra mig í marga daga). Jæja mér líður bara sæmilega og ákvað að skreppa í bíó með vini mínum. Stend ég þarna í þrengingum að bíða eftir að það sé opnað inní salinn og byrja að líða drulluilla (hitna og verð órólegur). Ég bara fer og sest í einhvern sófa þarna og líður strax mikklu betur. Fer svo inn þegar það er búið að opna og finn vin minn. Sest niður og já það var nokkuð þétt setinn salurinn þarna (forsýning á mynd). Myndinn byrjar og 5 mín eftir það byrjar mér að hitna aftur. Ég verð ógeðslega taugastrekktur eitthvað og bara verð að komast fram. Treð mér þarna á milli fólks í miðri mynd og labba frammágang. Strax á eftir líður mér bara vel. Fer bara á klósettið og fé mér vatn og fer aftur inn. 5 mín seinna kemur þetta nákvæmlega sama fyrir aftur. Ég bara ignorea þetta og enda með að ég er orðinn skíthræddur við að æla bara í bíó eða eitthvað. Drulla mér fram aftur (fólk náttúrulega orðið hálfpirrað á bröltinu í mér). Ég stóð svo afganginn af myndinni bara við útganginn og horfði á hana þaðan (það var allt í lagi þar). Þannig já ég fékk feita innilokunarkennd af þessu bölvaða ZitroMax lyfi og ætla hreint að vona að hún FARI AFTUR (hef aldrei áður verið með innilokunarkend).

Mér finnst að læknar eigi að vara fólk við svona hlutum. Að manni eigi mögulega eftir að líða illa og þetta geti farið svona uppí hausinn á manni og ruglað í manni. Hann lét mig bara fá þetta og sagði ekki neitt (svipað og ég væri að kaupa mars útí búð).

Kveðja Gemini

p.s. Þetta lyf reyndar losaði mig við flestar bólur sem ég með (stórfurðulegt þarsem að þetta tengist þeim ekki NEITT þetta lyf)