Ég fór nú bara svolítið að spá í dag.

Málið er að margar stúlku, oft mest á táningsaldri kvarta yfir hversu feitar þær séu, og örugglega vinsælasta setning þeirra er “nú fer ég í megrun!”

Ég viðurkenni að ég er ekkert skárri, en svo fór ég virkilega að spá í dag, þegar ég sá þessa konu..

Þið kannist við þessar konur sem eru með alveg ROSAlega stór brjóst, þannig að naflinn er BÓKSTAFLEGA á milli brjóstanna… já þessi kona var með svoleiðis á bakinu! semsagt á herðablöðunum. þið getið ímyndað ykkur afganginn!! hún hefur verið um 300 kg.

Ég hugsaði til þess hversu erfitt þetta hlyti að vera, ég meina, álag á hnén, bakið, svo ekki sé minnst á andlega!

Þetta er rosalega fín kona, mjög skemmtilega og létt í skapi.

En við skulum muna eftir þessum þegar við erum í einhverju jólaþunglyndi yfir hversu feit við erum orðin, njótum jólanna eins og við getum og verum þá bara dugleg á nýju ári, ef jólaát okkar verður eitthvað vandamál!

Gleðileg jól
kvkhamlet