Ég er hér að óska eftir fólki sem hefur áhuga á því að koma fram í sjónvarpsmynd um þessa svokölluðu magaminkunaraðgerð. Hugmyndin er að fá að fylgjast með nokkrum einstaklingum í þeirra daglega lífi fyrir þessa aðgerð, fá síðan að fylgjast með programminu sem farið er í fyrir aðgerðina og jafnvel aððgerinni sjálfri. Viðtöl tekin við einstaklingana og jafnvel nánustu fjölskyldumeðlimi og sagt frá því hvernig lífið hefur verið fyrir aðgerðina. Og svo er hugmyndin að fylgjast með og sjá hvernig áranginn að þessari aðgerð og hvernig hún hjálpar fólki.

Hér með óskast bæði strákar og stelpur á aldrinum 16-25 ára sem eru á biðlista eftir þessari aðgerð. Viðkomandi þarf að vera til í að leyfa kvikmyndatökumanni að fylgjast með matarinnkaupum, matartíma, verslunarleiðangri í fatabúðir og fleira og veita þannig smá innsýn í sitt daglega líf fyrir aðgerðinna og hvernig árangurinn verður eftir hana.
Áætlað er að kvikmyndin taki amk ár í upptöku.
Séu hér einstaklingar sem að hafa áhuga á að taka þátt í þessari kvikmynd eða spyrha eitthvað nánar út í þetta eru þeir vinsamleagst beðnir að hafa samban við mig hér í einkaskilaboðum.
Einnig ef þið vitið um einhverja sem eru í þessum sporum um að gera að láta þá vita.

Bæði stelpur og strákar á aldrinum 16-25 þar sem ætlunin er að fylgjast fyrst og fremst með ungu fólki. Sé einhver einstaklingu sem fellur ekki inní þetta aldurstakmark en hefur áhuga á þessu er samt allt í lagi að sá hafi samband. Ekki strang aldurstakmart þó þetta sé svona viðmiðið.

Tökur munu hefjast fljótlega.
Cinemeccanica