Komið sæl,

Ég ákvað aðeins að spreyta mig um reykingar og ástandið sem við lifum í dag við þannig hluti. Maður þarf ekki að vera hálfviti til gera sér ekki grein fyrir því að rottueitur, sýra, eldflaugareldsneyti, Tjara, Kolsýringur, Brennisteinsvetni, Tréspíritus og Blásýra er ekkert sérstaklega gott fyrir þig. Samt sem áður reykja yfir 21.989 íslendingar á ári hverju.

Hver hefur ekki orðið var við því að þurfa að sitja í strætóskýli og þurfa að lifa við það að einhver annar kemur inn og kveikir í sígarettu án þess að gefa sekúndarfjórðung af hugsun í það að kannski þetta á eftir að hafa áhrif á fólkið í kringum mig. Og þetta heyrir maður mjög oft frá reykingarfólki, þeim er stundum alveg sama um sjálfan sig og hvað það er að gera við þig. Já ok, en hvað með fólkið sem er sama um það!?! Við hefðum getað hlustað á Hauk Morthens syngja í nokkur ár í viðbót hefði það ekki útaf þessu máli.

Ég er alls ekki að reyna að móðga eða ásaka ykkur sem reykja, ég geri mér alveg grein fyrir því að það er mjög erfitt að hætta (ég hef séð það). Og það þið eruð örugglega bestu skinn. En stundum verður maður aðeins að hugsa um heilsu þjóðfélagsins. Og við íslendingar erum sko ekki eina þjóðin sem þarf að lifa við þetta. Annar hver frakki reykir samkvæmt skoðun sem var gerð, og danir eiga það til að reykja eins og strompar stundum. Hérna í Bandaríkjunum eru sígarettufyritækin alltaf að reyna að sykurkóða þetta allt og reyna gera allt betra. Í fyrra eyddu þau $12.000 í góðgerða og eyddu svo $250.000.000 í það að segja fólki frá því, soldið lame…..

Og svo er það málið með reykingarsvæðin á veitingarhúsum….“að hafa sérstakt reykingarsvæði á veitingarhúsi er eins og að hafa sérstakt pissusvæði í sundlaug”. Þetta á eftir að komast út um allt eina leiðina eða aðra. En allaveganna skora ég bara á alla sem reykja að reyna að hætta og lifa heilsuríku lífi, og munið þið, ég segi þetta vegna þess að ég hef áhyggjur af þér og þínum. Hef lent í því að missa ástvini aðeins og snemma útaf þessu.

Guð blessi ykkur öll :D
“If you have a gun, you can rob a bank. If you have a bank, you can rob everyone”