Þannig var að að ég var hérna í mesta sakleysi að vafra á Huga þegar mamma kallar á mig og segir mér að koma niður. Þegar ég kem svo niður er mamma að horfa á einhvern þátt í danska sjónvarpinu um geðveikislega feitar konur-wich is not the worst part-og karla sem finnst þær kynþokkafullar, og vilja fita þær og fita..

Ég bara vissi ekki að það væri svona fólk til! T.d. var einn gaur sem giftist konunni sinni, þá var hún bara venjuleg eiginlega, kannski svolítið þybbin. Eeen nei. Hann langaði í feitustu konu í heimi! Og hætti ekki þar til konan var komin uppí 400 kíló eða 821 pund, það fannst honum sko GEÐVEIKT sexí! Svo tók hann líka erótísk myndbönd af henni og seldi! Þetta er náttúrulega baaara sick.

Svo finnst þessum sama gaur slit ótrúlega kynþokkafull. Konan hans var með læri sem voru 180 cm í þvermál! Og húðin var orðin svört og 2 cm þykk neðan á og á hliðunum á lærunum..

Það var líka fjallað um offitu - KLÁM! “I´ve tried this with thin girls, and it just doesn´t do it for me” Ojjj.. það er ekki verið að tala um fólk sem er 100 kíló, heldur 200-300! Enn og aftur - Ojj!

Svo er það kona sem er mjög stolt af því að vera með guinnes met - þyngsta módelið. 800 pund, hvorki meira né minna, það voru sýndar einhverjar myndir úr playboy eða eitthvað þannig þar sem hún var að pósa með alveg mjórri stelpu.. Arg. Þetta var það ógeðslegasta sem ég hef séð.

Jæja, vona að þið hafið notið þessa ógeðsskýrslu minnar.. ábyggilega ekki, eeen ég varð bara að koma þessu útúr mér.