Nudd er frábær leið til að losa um stress og ýmis úrgangsefni sem saman safnast í líkamanum. Íþróttamenn jafnt sem almennt fólk hafa nýtt sér þá kosti sem nuddi fylgja í aldanna raðir. Fyrir mig hefur nudd alltaf spilað lítinn þátt í íþróttaárangri þangað til nýlega. Ég nota það við ýmsum eymslum og stífleika sem á það til að myndast í vöðvum. Ég mæli eindregið með að allir kanni nudd, og þá kosti sem því fylgir.

Nú er ég að hugsa mikið um stutt nám í nuddi, einhver námskeið þ.e.a.s. Ég hvorki tími né hef tíma í að stunda heilt nám með tilheyrandi kostnaði og útskrifast með einhverja gráðu. Ég vill aðeins fá grunnkunnáttu í nuddi til að geta nuddað sjálfan og nána á betri og áhrifaríkari hátt. Eina námið sem ég sé fyrir nuddara er langt og dýrt. Er ekki hægt að komast einhverstaðar í nuddnámskeið sem er aðeins nokkur kvöld, eða vikur, og kostar þá mun minna fyrir vikið? Að sjálfsögðu veitir það mér engin réttindi til að selja þjónustu sem nuddari, en ég vill það heldur ekki.

Friðrik T
“we are brothers