Tók maður uppá því að byrja á því að byrja í svona ‘'vítamínkúr’'vegna þess að maður er að reyna að stuðla að betri lífsstíl og sökum þess að maður æfir íþróttir, þá bætir þetta árangur manns töluvert.

Verð ég að segja að eftir að ég byrjaði að innbyrða vítamín á hverjum degi, sem sagt fjölvítamín,lýsi og ávaxtasafa sem inniheldur mikið magn vítamína,þá hefur maður tekið eftir því að maður er orðinn hressari á morgnanna og er þetta eitt af því sem ég get nefnt.

Besta aðferðin við að innbyrða þessi vítamín er að byrja á því þegar maður vaknar að taka lýsið á fastandi maga.Síðan snýr maður sér að fjölvítamíns töflunum og skolar maður einni þannig á dag með vænu glasi af ávaxtasafa.

Eftir þetta getur maður farið hress og kátur út í dagsins annir sökum hressleika.

Verð ég að segja að þessi ‘'kúr’' minn er að gagnast mér vel og verður maður bara að reyna að vera duglegur í því að innbyrða þetta á hverjum degi til að haldast hress og náttúrulega til að stuðla að betri líðan.