Ég ætla bara að deila þessu með ykkur…vona að þetta komi ykkur til góðs :)

Ég er í svokölluðu aðhaldi…ég er með þennan yndilslega björgunarhring…samt ekki mikinn…svo er ég með magann hans pabba sem er svona jaa…get ekki sagt mikill en samt einhver…ok…ég er í þessu aðhaldi og ég fann mjög mikinn mun eftir nokkrar vikur sko…eða allavegana mjög fljótt…þannig var það:

Ég hætti að fara á þessa skyndibitastaði eins og McDonalds og það.
Fór að fara í göngutúra eða skokka svona annan hvern dag eða meira.
Hætti að drekka gos.
Hætti að borða nammi.
Fékk mér boost bar svona tvisvar í viku (þá heimagert)
borðaði yfirleitt á morgnana hreina súrmjólk með cheeriosi.
Drakk alltaf vatn með matnum.
Svo fór ég að pína í mig fisk sem ég hef aldrei borðað áður í svona 2 ár.

Þetta hefur gert mjög mikið fyrir mig.
Langaði bara að deila þessu með ykkur :)