Fólk er kynþokkafyllst þegar það á tvö ár eftir í fertugsaldurinn eru niðurstöður nýrrar könnunar. Þegar tvö þúsund Bandaríkjamenn voru spurðir að því á hvaða aldri fólk væri kynþokkafyllst bar talan 38, sigur úr býtum.

En hvenær erum við fallegust? Þeir sem eru yngri en 35 ára telja fólk um þrítugt vera fallegasta en fólk yfir 65 ára telja mestu fegurðina vera þegar fólk er 46 ára.

Þá kom fram að ríflega 90% þátttakenda eru ánægðir með útlit sitt og telur sjötti hver einstaklingur að innri fegurð vegi þyngra en ytra útlit.

Könnunin var framkvæmd á vegum Roper Starch Worldwide og greindi National Post frá niðurstöðum.