Með viljann að vopni Fólk sem aldrei hefur reykt á ekki gott með að skilja hve þörfin fyrir sígarettu getur verið óbærileg. Jafnvel þeir sem hafa fullan hug á að hætta, geta lotið í lægra haldi þegar sígarettan er annars vegar. Þeir sem aldrei hafa reykt halda oft að það að hætta sé einungis spurning um að taka sjálfan sig taki og hafa viljann að vopni. En það að hætta að reykja hefur ekki bara með viljastyrk að gera……

Til er eðlileg skýring á því af hverju erfitt er að hætta
Þegar þú hættir að reykja getur þú þurft að berjast við mikil fráhvarfseinkenni vegna þess að líkaminn saknar nikótínsins sem hann er vanur að fá. Til að standast reykbindindi með sem minnstum óþægindum, getur þurft meira en viljastyrk. Góð reyklaus leið er að nota nikótínlyf til að minnka þörf líkamans á nikótíni smám saman og komast þannig yfir erfiðustu vikurnar eftir að reykingum er hætt.

Að minnka þörfina er leið til að hætta
Nikótínlyf innihalda nikótín í ákveðnum skömmtum sem nægja til þess að minnka nikótínþörfina og þú ert laus við tjöru og kolmónoxíð úr sígarettureyknum. Nikótín er ekki krabbameinsvaldandi efni og þú munt ekki verða háður nikótíni með því að nota nikótínlyf. Sem reykingamaður ert þú þegar orðinn háður nikótíninu en nikótínlyf voru þróuð til að draga úr fráhvarfseinkennum og auðvelda fólki að hætta að reykja.

Að ná árangri
Þú getur aukið möguleika þína á að standast reykbindindi með því að nota Nicorette®, leiðandi vörumerki um allan heim fyrir nikótínlyf, allt frá því Nicorette® nikótíntyggigúmmí, fyrsta nikótínlyfið, var markaðssett.

Mismunandi einstaklingar, mismunandi þarfir, mismunandi leiðir til að hætta
Í dag er hægt að fá Nicorette® sem tyggigúmmí, forðaplástur, tungurótartöflur og innsogslyf án lyfseðils. Nicorette® nikótínlyf koma ekki í stað viljastyrks, en geta veitt þér stuðning þegar þú ákveður að hætta að reykja.