Sælir Hugarar,

Hér á huga hafa greinar um reykingar flogið inn á undanförnum dögum.
Og fólk er svona ýmist að halda því fram að reykingar eigi að vera leyfilegar alls staðar og sumir vilja finna einhvern milliveg svona eins og gengur og gerist.

En mitt álit er að reykingar eigi að vera ólöglegar alls staðar nema í þínum eigin húsakynnum eða húsakynnum þar sem húseigandi hefur gefið þér leyfi til þess.
T.d. ekki reykja í bíl alveg eins og það má ekki tala í síma í Bíl án handfrjáls búnaðar þá ætti ekki að fá að reykja í Bíl…Gæti ekki verið meira sama þó fólk drepi sig á reykingum en ég vill ekki eiga á hættunni að drepa líka út af reykingafólki.

Fólk sem reykir á ekki að njóta neinna forréttinda, heldur á að útskúfa þessu fólki - Róttækt? Já ég veit en ég er ekki að spúa eitri framan í það.

Fólk sem vill spúa eitri á annaðhvort að gera það heima hjá sér eða í Bíl sem er ekki á ferð.

Ef við tökum hart á fólki sem reykir og útilokum flesta staði til reykinga og ekki gera sérstök reykingaherbergi í stofnunum og svoleiðis þá myndi það bæta líðan fólks almennt.

Ef fólk vill endilega vera að neyta tóbaks þá segi ég nú kannski ekki að ég mæli með því en það er þó skömminni skárra að taka þá í vör eða eitthvað álíka - En tek það engu að síður fram að ég hvet engan til að gera það eða neyta tóbaks yfir höfuð.

ÚTSKÚFUM REYKINGAR - ALLS STAÐAR!!