Eins og allir vita er mikilvægt að hafa góða heilsu en því verður ekki neitað að mín
hefur farið slakknandi síðustu árin og kominn tími til að taka á þessu og hætta þessu
lífi sem ég hef lifað upp á síðkastið enda líkamleg sem og andleg heils mín ekki í nógu
góðum málum.
Ég hef áður reynt að fara í svona átak en ekki tekist sem skildi en fyrir því voru líka
ákveðnar ástæður en að sjálfsögðu er þetta spurning um sjálfsaga og ég mun ekki
hætta í þessu átaki.

Ég ætla sko að taka af mér nokkur kíló og bæta á mig smá massa þannig að sjálfsögðu
mun ég bæta á mig kílóum þótt að þau kíló verði ekki fita því að massi er víst þyngri
en fita eða eitthvað svoleiðis..
Ég kem reglulega með svona reports um hvernig mér gengur þannig að komið
endilega inn á hverju kvöldi til að sjá hvernig mér gengur og komið með tillögur eða
komment.
Ég er byrjaður í boxi og kominn á pepsi max eftir að hafa verið kókisti (ekki kókaín) í
fleiri ár og náttla verður mataræðið tekið í gegn og ég er stolltur að tilkynna að í fyrsta
skipti á ævi minni keypti ég mér ekki nammi áðan þegar að bróðir minn fékk sér það
út í sjoppu heldur fékk ég mér pepsi max og appelsínur og þær voru gómsætar.
Að fara út í pylsuvagn er svoldið félagslegt hjá mér og viti menn ég stóðst mátið í gær
og fékk mér ekki neitt þar heldur bara appelsínusafa…


Farið á http://kkkson.blogspot.com og lesið hvað ég hef verið að gera og
hvernig gengur..

Einnig vil ég þakka Silky fyrir ómetanlegan stuðning núna síðustu daga og ég held að
ég hefði ekki farið út í þetta ef hann hefði ekki hvatt mig og gefið mér góð ráð.