Það getur verið mjög erfitt að ná kílóunum af sér en með réttu hugafari og góðum sjálfsvilja er þetta leikur 1.
Hérna eru nokkur ráð.


Létt jógurt er mjög gott og það er mjög gott að setja smá cheerios(venjulegt) ofan í eða jafnvel epla bita allt eftir smekk.

skyr, skyr.is með vanillu, ástaraldinum og melónum eru mjög holl svo er hægt að fá sér líka með jarðaberjum eða peru en ég mundi samt mest mæla með hinum.

Drekkið frekar léttmjólk í staðinn fyrir nýmjólk, maður venast því mjög fljótt.

Reynið að drekka 1,5-2 lítra af vatni á dag, vatnið hreinsar öll óhreinindi og aukaefni úr líkamanum.

Forðist brauð, það er í lagi að leyfa sér einu sinni og einu sinni en brauð er ykkar versti óvinur (fyrir utan sælgæti) ef þið getið ekki lifað án brauðs(eins og ég var fyrst þegar ég byrjaði) þá er hægt að kaupa ger- og sykurlaust brauð sem er mjög gott.

Forðist allar sósur eins og kokteil sósu, hamborgarasósu og fl. tómatsósa og salsasósa er í lagi.

Borðið mikinn fisk( en ekki feitan fisk)

Forðis pulsur og bjúgur, borðið frekar kjúkling.

Kartöflur og franskar eru mjög fitnadi og reynið að forðast þær.

Borðið mikið af ávöktum og grænmeti.

Boootz er mjög gott ef þið kunnið ekki að búa það til þá er það mjög auðvelt:

Takið eina skyr.is dollu(helst vanillu), jarðaber og banana (eða bara einhverja ávexti fer bara eftir smekk) og klaka setjið þetta allt í blandara og mixið saman og drekkið þetta er mjög gott að kemur í stað einnar máltíðar.

Og svo eitt að lokum forðist allt nammi yfir vikuna, allt gos og allt snakk og svoleiðis, hagið frekar einn nammidag í viku og þá megiði háma í ykkur eins og þið viljið og þið fitnið ekki neitt. Það er mjög erfitt að trúa þessu en þetta er satt ég er sjálf búin að prófa þetta, og þetta virkar. En þetta virkar bara ef að maður borðar ekkert nammi alla hina dagana.

Konur reynið að borða undir 1200 kalóríum á dag
Karrlar——————–1500 —————.

Ekki fara á kolvetniskúrinn( man ekki hvað hann heitir), þar sem þið borðið nánast ekkert kolvetni og bara eintóma fitu, þetta er það versta sem fólk gerir við sjálfan sig, þetta virkar maður grennist alveg fullt og á mjög stuttum tíma en þetta er mjög vont fyrir hjartað og æðakerfið.