Ég á ekki við svefnleys að stríða heldur það að ég er mjög oft þreytt og virðist engu skipta hversu mikið ég svef. Það er mjög pirrandi að vera þreytt sí og æ og ekki koma miklu í verk vegna þreytu. Nú æfi ég reglulega og reyni að borða hollan mat. Svo er það líka annað mál en ég er búin að vera að æfa reglulega í 2 mánuði núna, búin að minnka sælgætisát, borða bara um helgar og ekki mikið af því, hef líka dregið úr gosdrykkju en ég finn engan mun á mér :( þannig að mér finnst þetta allt vera eitthvað frekar vonlaust núna. Ég er náttúrulega ekki að búast við neinum töfralausnum og ég veit að það tekur langan tíma bæði að koma sér í form og kannski léttast eitthvað en þegar ég finn ekki neinn mun eftir 2 mánuði. Er ég þá að gera eitthvað vitlaust?