Offituvandamálið er alltaf að verða stærra og stærra hérna á Íslandi og fólk er alltaf að leita að einhverri töfralausn til að grenna sig. Sumir éta bara duft og pillur og aðrir “cutta” út kolvetni eða fitu eða prótein og enn aðrir prófa einhverja aðra vitleysu.
Ég er búin að missa 16 kg undanfarna mánuði. Vitiði hvað ég gerði? Ég skipti yfir í hollt mataræði og hreyfði á mér rassgatið. Þetta er ekkert flóknara en það.
Reyndar er þetta mjög einfalt dæmi. Líkaminn brennir ákveðnum fjölda hitaeininga á dag. Ef þú innbyrðir fleiri en hann þarf þá fitnaru og ef þú innbyrðir færri þá grennistu. Ef þú sveltir þig þá hægir hann á brennslunni. Til að auka brennsluna þá þarftu að hreyfa þig.
Það er hægt að rökræða endalaust um það hvort kolvetni eða fita eða prótein fiti mann eða ekki. Hvert gramm af fitu inniheldur hinsvegar fleiri hitaeiningar heldur en hvert gramm af kolvetnum og próteinum þannig að það segir sig sjálft að ef þú borðar mikið af fitu þá innbyrðiru fleiri hitaeiningar.
Sumir eiga eflaust eftir að spyrja “hvað meinaru með hollt mataræði”. Ég er að meina þetta hefðbundna: grænmeti, fiskur, kjöt, magrar mjólkurvörur, ávextir …. allur pakkinn. Kolvetni ættu að vera 50-60%, prótein 30-40% og fita restin. Við þurfum á öllu þrennu að halda (bara mismikið af hverju) og við þurfum vítamínin og steinefnin. Aðalmálið er bara að borða ekki of mikið.
Ég verð líka að segja að mér finnst þessar töfralausnir svo rangur hugsunarháttur. Ég meina viljum við bara grennast? Viljum við ekki frekar grennast OG verða heilbrigðari? Er ekki betra að fara í ræktina og byggja upp hraustan líkama og borða fjölbreyttan og hollan mat heldur en að taka inn pillur og éta duft? Líkaminn er eitthvað sem við sitjum uppi með alla okkar ævi og því betur sem við förum með hann því lengur lifum við vonandi og því betur líður okkur líka vonandi í honum.
Æ ég veit hvernig þetta hljómar allt hjá mér, svona “I know it all” en ég er bara orðin svo þreytt á þessum einföldu lausnum sem yfirleitt eru engar lausnir. Mér finnst fólk sem vill grennast soldið þurfa að sparka bara í rassgatið á sér og hætta þessu rugli því að raunverulega lausnin er beint fyrir framan nefið á þeim og hefur alltaf verið.