Ertu algör ísæta?=) smá hjálp Ég elska ís og hef verið að reyna að hætta þessu….
Stelpurnar í vinnunni eru allaf að blanda sér alskonar shake með nammi, ís og sósum út í. Þar sem að ég má ekki fá mér nammi og ís þá datt mér í hug að blanda alskyns ávöxtum og skyrum saman…


En annars ef að þig langar rosalega í ís/shake þá er smá uppskrift sem að mér finnst rosalega góð og hún er ekkert nema holl og þú verður vel södd af henni

1/2 banani(ég set alltaf einn því að mér finnst bragðið betra þannig)
1 Skyr.is (jarðaberja)
1 Skyr.is (Vanillu)
nokkur jarðarber (bara eftir smekk)
Ef að það eru ekki nein jarðaber við hendina þá er hægt að setja jarðarberjasósu.
svo er líka gott að setja eins og 1/4 - 1/2 peru

Takið þetta allt og blandið saman við klaka (svona 10stk eða fleiri ef að þið viljið ekki hafa hann þykkan)

Verði ykkur svo að góðu=)
SHG