Syd Barret í rugli Þessi mynd var tekin af Syd Barret þegar hann kom að heimsækja Pink Floyd í Abbey Road þegar þeir voru að taka upp plötuna Wish You Were Here sem er tileinkuð Syd. Syd var djúptsokkinn í dópi á þessum tíma og hafði bætt á sig mörgum kílóum og rakað af sér augabrýrnar og hár af hausnum, vinir hans í Pink Floyd þekktu hann ekki fyrst, Roger Waters fór að gráta þegar hann áttaði sig á að þetta væri Syd. Syd fékk að heyra þá spila Shine on You crazy Diamond og honum fannst það flott, en vissi ekki fyrr en seinna að lagið væri um hann.