Gaukurinn minn Fyrst að fólk er ekki að skrifa mikið inná þetta áhugamál þá ætla ég að gerast svo djarfur að segja frá Gauknum minum.

Páfagaurinn minn heitir Ástrikur (fáránlegt nafn á gauki en það verður að hafa það) hann er um það bil 3 ára gamall, hann er karlkyns. Hann er svoldið spakur með sig (ég held að það sé útaf því að han hefur aldrei verið hrekktur) og þannig að hann labbar á gólfinu óhræddur um að einhver stigi á sig.

Svo er getur hann verið einstaklega frekur og flýgur á matinn minn og gæðir sér af bestu lyst af honum, en fyrir utan það að hann er snikjudyr er hann lika alltaf að biðja um athygli og vill leika sér að manni.

Þetta mun þá vera gaukurinn minn (ætla að reyna að senda mynd með og vona að hun komi)

Ingi Kveður að sinni