Hvaða ríki er þetta og hver stofnaði það?
Hér sést hversu stór hluti Þýskra grunn-svæða hefur fallið til annarra ríkja á árunum 1918-45. Í dag er Þýskaland aðeins rétt meira en helmingurinn af því sem það var og þar vantar meginhluta Prússlands sem var leiðandi þýsku konungdæmanna er þau voru sameinuð árið 1871. Þökk sé hinum ósanngjörnu friðarsamningum og gamaldags refsiaðgerðum eru margar alþýskar borgir pólskar, en Pólverjar hafa aldrei unnið Þjóðverja í stríði.
Þegar bandarísk-sovéska áróðursstríðið stóð sem hæst mataði Bandaríska ríkisstjórnin þegna sína af áróðri um þrælasamfélag kommúnismans í Sovétríkjunum. Sovétmenn voru heldur ekki barnanna bestir og hér má sjá Sovésku túlkunina á hinu víðfræga frelsi og jafnrétti sem Bandaríkin höfðu til þessa gefið sig út fyrir að standa fyrir.
“Kremlarbóndinn” var hann kallaður hér á landi og ekki spöruð um hann lofsyrðin. Hann var í bókstaflegri merkingi átrúnaðargoð mis-gáfaðs og hrekklauss fólks um víða veröld, og á tímabili var hann meira að segja í miklum metum í hinum ramm-kapítalísku Bandaríkjum, kallaður “Uncle Joe”.
Gröf Paulu Hitler, eina alsystkinis Hitlers sem óx úr grasi, í Þýskalandi.