Árið 1989 átti Pontiac Firebird Transam 20 ára afmæli og í tilefni þess var gerð sérstök afmælisútgáfa. Í stað þess að byggja hana á útlitinu þá fór Pontiac þá leið að láta aðal muninn vera í húddinu, en þar var 3,8L Buick vél með túrbínu.
Þetta er ein af mínum uppáhaldsmyndum. Ég tók þessa mynd síðasta sumar í Skagafirði. Ég hafði ekið frá Akureyri í brjáluðu roki og rigningu og stoppaði í Varmahlíð til að teygja úr mér. Rétt þegar ég var að setjast inn í bílinn glitti í sólina og sendi hún geisla bara á þennan sveitabæ í nokkrar mínútur. Ég var nógu heppinn að ná þessu á filmu… ööö.. rafrás.