Ljósmyndun Þetta er ein af mínum uppáhaldsmyndum. Ég tók þessa mynd síðasta sumar í Skagafirði. Ég hafði ekið frá Akureyri í brjáluðu roki og rigningu og stoppaði í Varmahlíð til að teygja úr mér. Rétt þegar ég var að setjast inn í bílinn glitti í sólina og sendi hún geisla bara á þennan sveitabæ í nokkrar mínútur. Ég var nógu heppinn að ná þessu á filmu… ööö.. rafrás.
Olympus E-100, 13.4mm, 1/500sek. f2.8