TJ schiller að gera það gottKominn tími á nýja mynd
Eternal Tears of Sorrow er finnsk melodic deathmetal sveit (symphonic deathmetal á þessari nýjustu plötu sinni reyndar) sem ég hef ekki séð mikið talað um hér á Huga, ef eitthvað. Var eiginlega að uppgötva hana bara í gærkvöldi sjálfur, heyrði nokkur lög á YouTube og varð strax húkkt. Datt í hug að vekja smá athygli á henni hérna. Örugglega ekki fyrir alla, en fyrir aðdáendur melodic deathmetal er þetta vonandi kærkomin og áhugaverð viðbót í safnið ef þið hlustið ekki á þetta nú þegar! ^^
Þegar litið er yfir alla leiðtoga Rússlands síðan á síðari hluta 19.aldar má sjá það skemmtilega munstur að þeir skiptast alltaf á að vera með hár og skalla. Það er einnig eftirtektarvert hvernig þeir virðast skiptast alveg á, mann við mann, hvort valdaskeið þeirra hafi verið tími stöðnunar eða framfara. Vissulega er þetta ekki algilt, tildæmis var valdaskeið Leníns ekki stöðugar framfarir, allavega ekki ókeypis framfarir og þrátt fyrir að Stalínstíminn hafi verið eitt mesta og grófasta skeið pólitískrar stöðnunar í sögu Sovétríkjanna þá var þar mikið um tækniframfarir og annað í þeim dúr. En þetta gefur grófa mynd af þessu munstri framfara og staðnana sem skemmtilegt er að velta fyrir sér.