Annar mjög einfaldur en mér finnst hann koma bara vel út, vonandi einhver sammála :)
Sir Douglas Haig,(1861-1928), var yfirmaður Bresku herdeildana á vestur vígstöðvunum 1915-1918, og einn umdeildasti hershöfðingi fyrri heimstyrjaldarinnar.
Þessi sérstæða mynd var tekin á lokasekúndum ítalska kappakstursins 1993 þegar að Minardi félagarnir Christian Fittipaldi (sonur heimsmeistarans fv. Emerson Fittipaldi) og Pierluigi Martini lentu í árekstri á lokahring sínum í ítalska kappakstrinum, en þeir voru að slást um 7. sætið og hljóp Christian fullmikið kapp í kinn og ók aftan á liðsfélaga sinn, og þeyttist upp í loft eins og myndin sínir. En þar sem þetta var aðeins 100-150 m frá rásmarki komust þeir báðir í mark í 7. og 8. sæti, þó svo bíll Christian hafi bara rétt skriðið á 2 hjólum í markið.