Gamla myndin - Árekstur Minardi félaga í ítalska kappakstrinum 1993 Þessi sérstæða mynd var tekin á lokasekúndum ítalska kappakstursins 1993 þegar að Minardi félagarnir Christian Fittipaldi (sonur heimsmeistarans fv. Emerson Fittipaldi) og Pierluigi Martini lentu í árekstri á lokahring sínum í ítalska kappakstrinum, en þeir voru að slást um 7. sætið og hljóp Christian fullmikið kapp í kinn og ók aftan á liðsfélaga sinn, og þeyttist upp í loft eins og myndin sínir. En þar sem þetta var aðeins 100-150 m frá rásmarki komust þeir báðir í mark í 7. og 8. sæti, þó svo bíll Christian hafi bara rétt skriðið á 2 hjólum í markið.

Slóð á myndina: http://www.statsf1.com/photos/gp/1993/545.jpg.

Slóð á myndskot af atvikinu: http://www.youtube.com/watch?v=g432gGn2Ljs.