Jay Hernandez, Eyþór Guðjónsson og Derek Richardson í einni ógeðslegustu mynd sem ég hef séð í háa herrans tíð, Hostel. Engu að síður fannst mér hún aaalgjör snilld og ætla að sjá hana aftur fljótlega. Dýrkaði Eyþór í þessari mynd!
Var gefin út '95 og er talin ein áhrifamesta plata Gothenburg stefnunnar ásamt The Jester Race (In Flames) og The gallery (Dark Tranquility). Snilldar plata og ég vill að At the Gates fari að gefa út nýtt efni, en seinasta plata þeirra kom 2001.
Hér má sjá Alskilnaðarmúrinn í Palestínu en múrinn er með öllu ólöglegur samkvæmt Genfarsáttmálanum. Árið 2004 krafðist allsherjarþing Sameinuðuþjóðanna að bygging múrsins yrði tafaralaust hætt en sú varð ekki raunin. Síðar úrskurðaði alþjóðadómstóllinn í Haag að múrinn skyldi tafarlaust verða rifin og fórnarlömbum greiddar bætur vegna byggingu múrsins. Ekki hafa Ísraelar fyglt dómunum eftir. En það er ekkert sem kemur manni á óvart með þessa dóma enda eru múrarnir byggðir langt frá viðurkenndum landamærum Ísraels. Yfir hundrað þúsundum manns hafa verið rænt jörðum af vegna byggingu múrins og tugir þúsunda komast ekki til vinnu sinnar vegna múrsins. Fólk sem býr við múrin sér ekki til sólar mest megnis af deginum. Þeir sem vilja ferðast út fyrir bæji sína þurfa að bíða í marga tíma við vegatálma, og í örfá skipti sleppa hermenn þeim í gegn.
Ég veit ég veit.. Óskýr mynd. En ja ég tók hana ekki. En á myndinni er Stakkur frá Þúfu á Tölti og ég er á baki. Þetta var í februar(11.02.2006) og ég var að keppa í Gusti. Fyrsta keppnin sem ég tók þátt í.. ;P…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..