Ég sá grein um daginn og þá var köttur sem fannst best að sofa í þvottavélinni. Eftir örskamma stund setti ég Kork inní þvottavélina og hann átti frekar erfitt að halda jafnvægi fyrst en svo fór hann bara að lúlla og svo stóð hann upp og þá tók ég þessa mynd :)
Ég er hjá frænda mínum í noregi (í sveit) og þetta eru hundarnir hanns Gordon Setter og man ekki hvaða tegund hinn er en hann er allveg eins og Lassie (vita flestir hver það er)
Skipit á Gust og þessum :) ekkert taminn 4 vetra jarpstjörnóttur hestur :) vantar alveg gríðalega nafn á hann, ennþá ekkert búið að skíra hann og mér dettur ekkert í hug haha:D meigið endinlega koma með einhver flott nöfn:P
Þetta er hún Bettý, nýi kettlingurinn minn. Hún fannst úti ásamt systkinum sínum eftir að móðir þeirra hafði skilið þá eftir. Þeir voru 2 vikna gamlir þegar þeir fundust, og fengu allir kettlingarnir að búa hjá kunningja mínum þar til þeir urðu 8 vikna. Þegar hún var orðin 8 vikna tók ég og konan mín við henni. Skemmtilegur liturinn á augunum hennar, annað er brúnt og hitt blátt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..