Gleymt lykilorð
Nýskráning
Dulspeki

Dulspeki

5.978 eru með Dulspeki sem áhugamál
22.112 stig
852 greinar
2.704 þræðir
45 tilkynningar
85 pistlar
472 myndir
612 kannanir
42.981 álit
Meira

Ofurhugar

Abigel Abigel 1.822 stig
divaa divaa 746 stig
hbraga hbraga 618 stig
icez icez 320 stig
tigra tigra 226 stig
deadsoul deadsoul 188 stig
Wiggi Wiggi 178 stig

Stjórnendur

Book of the dead (3 álit)

Book of the dead Bók hinna dauðu var leiðbeiningabók um framhaldslífið meðal egypta. Hér er sýnd mynd þar sem guðinn Anubis mælir hjarta hins dauða á móti fjöður, hjartað þarf að vera léttara til þess að hinn látni geti haldið för sinni áfram.

Witch (2 álit)

Witch Ein af mínum uppáhalds myndum eftir Waterhouse sem sýnir norn við galdur.

Jeff McBride (0 álit)

Jeff McBride Fyrst það er kominn korkur um töfrabrögð á þetta áhugamál taldi ég ekki alvitlaust að senda inn mynd af einum af uppáhaldstöframönnunum mínum, Jeff McBride….

The Greencastle Ghost. (27 álit)

The Greencastle Ghost. Þessar myndir voru teknar af tveimur mönnum, Terry Lambert og Guy Winters, sem skoðuðu gamalt yfirgefið hús í Greencastle, Indiana. Þeir fóru í leiðangur þangað um miðja nótt, eftir að hafa heyrt um að reimt væri þar, vopnaðir myndarvélum og upptökuvél.

Þegar þeir komu að húsinu eyddu þeir smá stund fyrir utan þar sem þeir tóku myndir af húsinu. Innfyrir var húsið algjörlega í niðurníðslu, engin húsgögn voru til staðar og gólfklæðnaður og veggfóður var að mestu leiti ónýtt. Eftir að hafa gengið um neðri hæðina í smá stund urðu þeir fyrir mjög óþægilegri tilfinningu eins og einhver væri að fylgjast með þeim. Annar þeirra byrjaði að heyra hjartslátt sem var ekki hans eigin og fannst eins og að hann væri að deyja. Þeir flúðu út eftir það og hröðuðu sér í burtu.

Eftir að myndirnar vorur skoðaðar kom í ljós margar mjög skírar myndir af draugum. Þar af þrjár myndir af sama drauginum horfandi út um glugga á efri hæð.

Myndirnar voru teknar með myndavél sem notar filmu og draugurinn kemur fram á upprunarlegu filmunni. Þegar sérfræðingur fór að skoða filmuna, breyttis andlitið á draugnum í hauskúpu sem gerði myndina andskoti drungarlega. Svarthvíta myndin sýnir hauskúpuna.

Undir venjulegum kringumstæðum fylgi ég tveimum reglum varðandi draugamyndir. Ef mennirnir voru að leita af draug þegar þeir tóku hana, þá er hún fölsuð. Ef myndin er of góð til að vera sönn, þá er hún fölsuð. Í þessu tilfelli erum við með menn sem voru að leita af draugum OG tóku myndir sem eru allt of góðar til að vera sannar en þrátt fyrir það þá kemst ég ekki hjá því að trúa að þessar myndir eru sannar.

Myndirnar þeirra og myndbandsupptaka kemur fram í heimildarmynd sem heitir World's Scariest Ghosts.

Bohemian Grove i D.C (17 álit)

Bohemian Grove i D.C Hér sjáiði uglu þar sem ráðhúsið í Washington D.C er. Uglan stendur fyrir leynilegt samfélag sem kallar sig Bohemian Grove. Uglu er einnig að finna á DOLLARANUM Ugla stendur fyrir “The watcher of the night” ef mér skjáltast ekki. Ég mæli eindregið með því að fólk kynni sér þetta samfélag ásamt Frímúrarafélaginu.

Önnur mynd sem ekki er af korti heldur tekun úr lofti:
http://i128.photobucket.com/albums/p191/totalreality_2012/WashingtonOwl.jpg

Áhugavert stöff.

Merki um frímúrara á götum D.C:

http://www.geocities.com/propheticangel2001/images/wtau.gif
http://www.postpositive.org/images/washingtonDCmapLarge.jpg

Sylvia Browne (3 álit)

Sylvia Browne Ein af frægustu miðlum Bandaríkjanna. Persónulega langar mér að kalla hana frægasta bullshitter Bandaríkjanna sem gefur fólki falskar spár til að fá pening.
Hægt er að lesa um hana hérna: http://www.sylvia.org/home/index.cfm
Þar sem hún selur fólki bull bækur og bull hluti sem eiga að koma manni nær látnum ástvinum.

Gaman að bæta við myndbandi af Sylviu Browne skíta á sig: http://www.youtube.com/watch?v=hRc4LkBRjIc

Betri mynd ? (34 álit)

Betri mynd ? einhver bað um betri mynd, en þetta verður samt verulega dauft.

Svarti steinninn (30 álit)

Svarti steinninn Svarti steinninn er staðsettur í Kaaba, heilögum reit múslima sem hverjum manni ber að heimsækja á ævi sinni.
Því er trúað að steinninn hafi verið sendur frá guði og sé frá tímum Adam og Evu.
Líklegast er þetta loftsteinn sem útskýrir hvers vegna mönnum hefur þótt hann svo merkilegur.
Hann er um 30 cm að þvermáli og í silfurumgjörð.
Þó svo að hann sé sterkt tákn í Islam þá var hann einnig trúartákn í forn arabískum trúarbrögðum og töldu þau að svarti liturinn væri tilkominn vegna þess að steinninn drægi í sig syndir manna.
Eftir margra ára þukl og þrá um að láta þrífa burt syndir sínar sést greinilega rof á steininum og fær fólk ekki að snerta hann lengur heldur gengur í kringum húsið sem hann er geymdur, Kaaba

Munkur í kirkju í North Yorkshire. (10 álit)

Munkur í kirkju í North Yorkshire. Ein af uppáhalds drauga myndunum mínum.

Prestur tók þessa mynd í kringum 1960 þegar hann var að ljósmynda kirkju í North Yorkshire í Englandi. Á altarnum byrtist vera sem lýtur út fyrir að vera munkur að byðja með hendurnar fyrir framan andlit. Munkar voru á þessum slóðum á 15 öld. Þessi kyrkja var aftur á móti bygð árið 1870 en áður fyrr stóð klaustur þar áður en Hinrik VIII lét loka því.

Ég man þegar þessi mynd var sýnd í heimildarmynd þar sem sérfræðingar voru að reyna að afsanna hinar og þessar ljósmyndir. Þeir leituðu að merkjum sem benti til að “draugarnir” væru ljósmengun eða hreyfing á myndinni eða einfaldlega falsaðar. Þetta var ein af þeim fáu myndum þar sem þeir fundu ekkert að.

ský (17 álit)

ský þetta er mynd sem notandinn noodle sendi hér inn um daginn og þetta er skuggalega lýgt hauskúpu eða mannesku einnig er hægt að sjá snák úr þessu.og já noodle leyfði mér að setja hana hérna inn
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok