Jæja hann er búin að vera forsætisráðherra í 10 ár:)
Charles de Gaulle, hershöfðingi, leiðtogi Frjálsra Frakka í síðari heimstyrjöldinni og síðar forseti Frakklands. Charles de Gaulle var svo sannarlega risi meðal manna… enda nær 2 metrar á hæð :) Hann var sannur föðurlandsvinur og dyggur sonur sinnar ættjarðar. Að því leyti a.m.k. mættu allir taka hann sér til fyrirmyndar.
John F. Kennedy, fyrrv. forseti bandaríkjanna. Hvaða skoðun sem menn annars hafa á John F. Kennedy þá sagði hann a.m.k. eina fleyga setningu sem segir meira en margt annað um skyldu einstaklingsins við ættjörð sína: “Don't think about what your country can do for you, think about what you can do for your country!” Að vísu mun kallinn sjálfur alls ekki hafa samið þetta heldur einhver ræðuhöfundur á lélegum launum en orðin standa þó fullkomlega fyrir sínu engu að síður.
Hverjum hefði órað fyrir því 1961 þegar Castro og skæruliðar hans höfðu tekið völdin á Kúbu að 40 árum síðar væri hann enn við völd þar á bæ? Af þessu tilefni má benda á það mat flestra hagfræðinga heimsins að ef viðskiptabann Bandaríkjanna væri ekki á Kúbu væri þar sennilega blómlegt efnahagslíf og hagsæld.
Jón Sigurðsson forseti var fæddur 17. júní 1811 og lést 7. desember 1879. Jón var föðurlandsvinur eins og þeir gerast bestir og setti hagsmuni og velferð íslensku þjóðarinnar í algeran forgang fram yfir allt annað. Á minningarsíðu Jóns á www.hrafnseyri.is segir m.a.: “Jón Sigurðsson var tímamótamaður í Íslandssögunni. Ættum við ekki að sameinast í því að halda nafni hans á lofti?” Ég get tekið fullkomlega undir þessi orð og ekki síður þessi: “Við ættum ekki aðeins að sameinast í að halda nafni hans á lofti heldur og í að halda á lofti því sem hann gerði fyrir Ísland og íslensku þjóðina og standa vörð um það.”
Það var einu sinni fyrir langalöngi að til var maður er barðist fyrir því að við neytendur borguðum hærra verð fyrir grænmeti en gengur og gerist í nágrannalöndum okkar. Í dag hefur þessi maður breyst, nú vill hann skyndilega fara berjast fyrir því að lækka tolla. Skrítið hvað heimurinn breytist á stuttum tíma.