Við veltum fyrir okkur hinum ýmsu möguleikum sem voru í stöðunni. Við ákváðum að skella okkur á stað sem var kallaður “Slumman”. Á leiðinni þangað vorum við djúpt hugsi afhverju á því skildi standa. Er við komum þangað voru öllum spurningum svarað, það kom maður að nafni Homma Beistli & í þeim stuttu orðaskiptum sem ég átti við hann, þá gat ég svalað öllum þyrztum einstaklingum í þessari litlu veröld sem við bjuggum í. Hann bauð okkur hjálp einhverra vina hans sem kölluðu sig “Feitir Þjófar.”! Ég horfði á hann um stund & velti fyrir mér hvernig feitir þjófar gætu eyðilagt fyrir mér skemmtunina.

Við tókum boði hans & héldum á vit ævintýranna. Við gegnum inná Pissukoppa Krónuna & að okkur sótti Analia. Hún spurði okkur hvort við mættum vera að því að tala við hana. Ég sagði henni að fara í *(ritskoðað)*. Ég leit snöggt yfir barinn & sá svo fullvaxinn karlmann skæla útí horni, ég spurðist fyrir um hver þetta væri. Þetta var Iam-no-men. Ekki nenntum við að drözlast með einhverja grenjuskjóðu, né nennti að hlusta á þetta öllu lengur. Ég dró upp sverðið & klauf hann herðar niður. Barþjónninn kom að okkur & kynnti sig. Hann hét Leður-í’ann. Ég bað um þetta venjulega, kvenmenn sem selja blíðu sína & þræla að berjast fyrir lífi sínu í hringnum sem allir þrælar deyja í. Ég kom mér vel fyrir & ætlaði að fara njóta sýningarinnar þegar hamstra helvítið hann Hor fór eitthvað að væflast fangaklefunum. Ég fór að ná í hann til að halda Minn-Disk rólegum, en viti menn, ræðst ekki einn af vörðunum á mig. Hann kallaði sig Pissukoppa Krónu Hoppari. Ég hafði aldrei á minni lífstíð séð eitthvað álíka jafn hýrt & þurrkaði þetta því út. En þeim fjölgaði! Við gerðum úr þeim bjúgur, svo vægt sé til orða tekið.
Skyndilega heyrðist ógurlega leiðinlegt væl. Þar var einn þrælanna að kynna sig sem Henda-Takk. Hann grátbað mig um að frelsa sig. Á þessari stundu þakkaði ég æðri máttum fyrir að hafa eitt stykki galdramann í mínum hópi & henti á hann “Þögn.”. Ég læsti dyrunum & gékk út úr herberginu & stúkunni einnig.

Þegar ég kom á barinn sá ég ungan & bráðfallegan dverg í miklum ama. Ég ákvað að spyrja hann hvort ég gæti aðstoðað? Hann þáði það & ég sá strax að þar var mikil mannvitsbrekka á ferð & mikill mannvinur. Við gengum út, ég, Minn-Disk, Ég-Heyra, Loft-Í, Korkur.