Ég varð bara svo hissa þegar ég rakst á tvo nýja, óopnaða kassa af bloodbowl hér á landi að ég varð að láta ykkur vita. Þeir sem hafa áhuga á að spila þetta kerfi meiga vita að það eru til eintök í Tómstundahúsinu, auk einhvers Epic dóts, gamalla steam-tanks, flame-kanóna og war-altara…

Ekki vissi ég að Tómstundahúsið hefði nokkurntíman verið með eitthvað GW stuff. Þetta eru allavega þokkalega gamlir kassar, hvað sem hverju líður…

Brjánn