Skjálfti 4 | 2002 verður haldinn 1. - 3. nóvember í íþróttahúsi HK (Digranes), Kópavogi.

Mótsgjald er krónur 3500, en þeir sem eru með leikjaáskrift Símans Internets fá 1000 króna afslátt og greiða því 2500 krónur.

Skráning stendur yfir 8. - 18. október (opnar 18:00). Við viljum benda fólki á að vera tímanlega í skráningu, fjöldi þáttakenda er takmarkaður og færri hafa komist að en vildu undanfarin mót. Á mótið komast aðeins 528 og hafa þeir forgang inn á mótið sem eru með leikjaáskrift hjá Símanum Internet. Fyrir aðra gildir skráningartíminn. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Skráningarkerfið verður eins og á síðustu mótum, fyrst þarf að skrá einstakling á mótið (einstaklingsskráning), en fyrir liðakeppnir þarf að stofna lið, og síðan skrá leikmenn í liðið. Ef það reynist nauðsynlegt að takmarka fjölda liða í ákveðnum greinum gildir sú regla, að þau lið sem eru fyrst skráð komast inn, þau seinustu ekki.

Keppt verður í eftirfarandi greinum á mótinu:

Half-life:
- Counterstrike
- Day of Defeat (ATH: ekki hægt að keppa í CS & DoD þar sem keppnirnar skarast)

Quake 2:
- Action Quake TP
- Action Quake FFA

Quake III Arena:
- Deathmatch Teamplay
- Capture The Flag
- 1 on 1 (hámark 64 þáttakendur)

Warcraft III (2v2)

Nánari upplýsingar á <a href="http://www.hugi.is/skjalfti">www.hugi.is/skjalfti</a>

Fyrir hönd Skjálftap1mpa,
Smegma