Sælir Hugarar.

Ég er nýr stjórnandi á Blizzard áhugamálinu, og ætla að ganga með ykkur Blizzard áhugamönnum í gegnum súrt og sætt, þótt ég búist nú við miklu fleira af hinu sæta frá ykkur hugurum.

Á komandi tímum mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að gera þetta áhugamál eins ánægjulegt og hægt er :).

Þetta er búið að vera frábært og skemmtilegt áhugamál í gegnum tíðina og það verður þannig án efa áfram, og er ég því stoltur að taka við stjórn þess við hlið frábærra hugara og stjórnenda.