Sælir eins og flestir vita er ég nýr stjórnandi hérna inná, ég er ekki eins og aðrir stjórnendur, ég er svona drengur með alltof mikinn tíma á daginn.
Það er eitt sem mér líkar mjög illa við og það er þursaskapur, rifrildi og hótanir á huga, hugi.is er ekki vettvangur fyrir þursaskap og leiðindi.
Hér eiga að vera virkar og skemmtilegar umræður og á þessu sérstaka áhugamáli, eiga þær að snúa að blizzard.
Þetta er stórt áhugamál, margir sem skoða það og að sjálfsögðu er það þannig að því fleiri sem koma hér inn, því fleiri þursar slæðast með.
Ég mun vinna í því eins og á öðrum áhugamálum sem ég stjórna að fara yfir ALLA korka sem berast inn, ég hef alltaf gert það og mun halda því áfram.
Þetta er ekki spurning um það hver er harðastur, þetta tiltekna áhugamál er um BLIZZARD.
En eins og ég segi, ég fer yfir alla korka sem inn berast og allar greinar, ég skoða öll svör við þeim svo að ég vil biðja ykkur, hættið öllum þursaskap þeir sem eru að því, þið hinir, EKKI svara mönnum sem eru með þursaskap, talið frekar við okkur stjórnendurna og við segjum þeim sem vilja leiðindi einfaldlega að hætta, þannig er hægt að kjæfa allt svona í fæðingu.

Vonandi taka sem flestir undir þetta, þetta gerir það að verkum að við þurfum ekki að fara á stjórnendaáhugamálið að fá fólk í bönn eða annað slíkt, ef enginn svarar þursunum þá hafa þeir engan til að rífa kjaft við.

Með fyrir fram þökkum: Wanganna