Þvílík aukning! Umferð á Blizzard jókst um 20.000 flettingar í júlímánuði og ég held ég geti fullyrt að útgáfa 1.6 hafi átt þátt í að koma þessu í gagnið. Blizzard Leikir er núna þriðja stærsta áhugamálið á Huga með 139.000 flettingar og skaut Battlefield (135.000 flettingar) og Hljóðfæri (111.000 flettingar) ref fyrir rass.

Þess má geta að til þess að komast upp í 2. sætið þarf umferðin að tvöfaldast… tjah, er hægt að gera betur? :)