Jæja nú fer eflaust að líða að skjalfta fljótlega “veit ekkert um dagsettningu” en ég vill bara láta alla warcraft3 fans vita að við viljum sjá fleirri keppa í wc3 á skjalfta.
Venjulega hafa það verið 11-16 lið en við viljum sjá fleirri sýna þessari keppni áhuga þar sem við erum að halda þessa keppni fyrir ykkur sem spila leikinn.

Fyrir ykkur sem hafa ekki mætt og hafið áhuga þá er þetta 2on2 keppni sem byrjar í riðlum og svo double elim. Það eru yfir 600 manns sem spila counter strike og quake3 endalaust og þeir ná alltaf að fylla skráninguna á nokkrum klukkutímum svo það þarf að skrá sig snemma til að getað tekið þátt.

Hægt er að keppa í q3CTF + warcraft3 EÐA AQTP + warcraft3
ekki er hægt að keppa í wc3 ef keppt er í counter strike, q3dmtp og q31on1. Svo eru einhverjir fleirri leikjum þarna sem ég þekki ekki alveg dagskránna á.. get bætt því við seinna.