Já, við félagarnir í nýstofnuðu reroll guildi á Burning Blade skelltum okkur í okkar fyrsta instance í dag, 11. jan. Tek fram að allavega 20% af okkur hafa reynslu af bæði AQ farm/Naxx/TK reynslu á öðrum chars.

Þar sem við erum allir á tiltölulega lágu leveli ennþá, þá byrjum við auðvitað á byrjun og við hættum okkur niður í Ragefire Chasm, í undirdjúp Orgrimmar.
Ferðin var plönuð nokkrum mínútum áður en við lögðum af stað, en við gátum aðeins farið 4 talsins þar sem fimmti meðlimur okkar var fyrir utan bæjarmörk og komst ekki með.

Þetta gekk allt saman vel og með þennan einfalda group sem samanstóð af Warrior, Shaman, Rogue og Druid þá komumst við í gegnum allt instancið án þess að wipa, þó ég viðurkenni að við vorum ansi nálægt því á köflum.
Sú skemmtilega staðreynd skýst upp í kollinn á mér, að það fékk 75% grúppunar level up í þessari ferð, þó stutt hafi verið.

Lootið var að sjálfsögðu eins gott og það gerist á þessu svæði, og hérna er listi yfir það helsta

en frá Taragaman the Hungerer fengum við Cursed Felblade(clickie) og fór sá item til warriorsins okkar, og mun reynast vel í komandi owni.

Frá Jergosh the Invoker fengum við svo Robe of Evocation(clickie) sem við ákváðum að myndi reynast shamaninum okkar best, þar sem mage'inn komst ekki með.

Í þessari ferð sem við höfðum allir sannarlega gaman af þá tókum við einnig fyrstu guild photo! Hérna er linkur á hana.

Endilega fylgist grannt með komandi framförum, en næst stefnum við á Wailing Caverns