Í okkar rosa progressi síðustu daga þá sátum við uppi með 2 bossa þegar við lögðum af stað í kvöld, en það voru Nefarian sjálfur og Chromaggus.

Við hlupum í gegnum instancið upp að Chromaggus í rosa fíling, allir í stuði tilbúnir að taka hann og sýna honum hvar davíð keypti ölið!
Fightið var intense og erfitt og voru gerð nokkur mistök í honum hjá okkur en klukkan 20:58:20 lá hann fyrir fótum okkar og allir í rosalegu stuði og aðeins Nefarian sjálfur eftir.

Eins troðfullir af metnaði og við vorum þá hlupum við inn að Nefarian á methraða eftir að looti var distributað, en droppin af Chromaggus voru Pauldrons of Transcendence, Bloodfang Spaulders, Taut Dragonhide Shoulderpads og Taut Dragonhide Gloves, til hamingju Beejay, Skuggabaldur, Kajari og Tenebrous.

Eftir ágætlega langar útskýringar og mikil fagnaðarlæti þá skelltum við okkur í kallinn til að prufa nokkur wipes og sjá hversu langt við komumst. Í fyrstu tilraun gekk ekki mjög vel en fáir dóu þá og wipuðum við á smá stund. Önnur tilraunin gekk mikið betur en við náðum 27 adds áður en við lágum fyrir þessu gífurlega afli en við fengum Rauða og Svarta kalla.

Við höfum gert alveg fáránlegt progress núna síðustu 3 daga en þetta var síðasta ferðin okkar fyrir komandi reset í kvöld, ég vill óska öllum föruneytismönnum til hamingju með þennan stórkostlega árangur að hafa clearað BWL upp að nefarian á þrem kvöldum þar sem 90% mannskaparins höfðu aldrei stigið fæti inní BWL áður.

Chromaggus - Killshot

Heimasíða Föruneytisins: www.foruneytid.stuff.is