Í gærkvöldi kl 8 streymdum við Föruneytis menn í BWL í þeirri von að ná _allavega_ niður firemaw og vonandi ná lengra en það.

Um 10 mín í 8 var raidið orðið fullt, vantaði einungis Raid Leader(RL) sem tafðist en meðan við biðum eftir honum stukkum við og sóttum okkur UBRS buffið og hann kom þegar það var að klárast. Við eyddum ágætis tíma í að hlusta á Firemaw strattið frá RL og eftir um 15-20 mín af stratti *geisp* þá stukkum við í hann og lá hann fyrir fótum okkar nokkrum mínútum seinna, drepinn í annari tilraun en við wipuðum á honum 1 sinni á sunnudagskvöldið vegna þess að menn voru uppgefnir.

Eftir þetta hlupum við í trashið fyrir Ebonroc og Flamegor en ágætis tími fór í að taka það og Ebonroc lá fyrir fótum okkar um kl 22:00 í fyrstu tilraun með 1 dauðann.

Í rosa stuði hlupum við svo í Flamegor og náðum við honum með erfiðleikum og margir dauðir og mjög messy fight hjá okkur en við náðum þessu með meðalstórum bolla af heppni ;)

Þegar þetta var komið allt voru menn orðnir mjög þreyttir, við eyddum 30 mín í að stratta Chromaggus en hann var okkur ofviða þetta kvöldið enda klukkan að ganga 1 og nokkrir höfðu sofnað fyrir framan tölvuna á trashinu fyrir Ebonroc.

Við náðum Chromaggus í góð 46% með Bronze og Red afflictions og kölluðum það gott það kvöldið með góðan heilan dag í resett svo við getum tekið nægar tilraunir og held við getum fullvissað ykkur, að helvítið deyr í kvöld!

Þessi árangur er fyrir ofan allra bestu vonum okkar og er þetta búið að ganga alveg stórkostlega hjá okkur og þótt ótrúlegt sé þá wipuðum við oftar í síðasta MC runni heldur en við erum búnir að wipa í BWL á þessum 2 dögum.

Firemaw: Bloodfang Gloves og Cloak of Firemaw - Mynd
Ebonroc: Dragonstalker Gauntlets og Dragonbreath Hand Cannon
Flamegor: Netherwind Gloves og Circle of Applied Force

Í öllum spenningnum gleymdis því miður að taka Killshots af Ebonroc og Flamegor en ég tók upp myndbönd af öllum 3 killunum sem ég reyni svo að skella inn á Google í dag/kvöld.

Áframhald seinna í kvöld eða á morgun!