Þegar þú ferð í Night Elves Campaignið og í Daughters of the Moon borðið geturðu fengið Hydralisk í lið með þér. Efst uppi í miðjunni finnurðu 3 Ballistas. Þú átt að nota þær til að skjóta niður trén hægra megin ská upp frá sama stað og ballisturnar voru og þá finnurðu Hydralisk. Hún er með 700 í hp. 84-120 í damage og 0 í armor. Fleira sniðugt: Þegar þú hefur unnið leikinn í normal og hard bætist svolítið við lokamyndbandið(þá meina ég þegar Arthas er að syngja á tónleikum og það). Í lokin koma Hydralisks og Space Orcs og fara að slást. Þetta er líka hægt ef þú hefur unnið leikinn í normal og hard: Þú ferð í Credits og núna eru konir loftsteinar sem lenda á náungunum sem eru að labba í hringi. Og taktu eftir Ogre Lordinum sem stendur fyrir framan hellinn, hann springur þegar loftsteinn lendir á honum. Í lokin á Creditnum koma svo hydralisks út úr hellinum og fara að slást við hin liðin.
Algjör Snilld hjá Blizzard.(Fyrir þá sem eru latir og nenna ekki að vinna leikinn í Hard þá nægir að spila síðasta borð í hard en ég mæli með að þið spilið allan leikinn!)