Er búinn að vera að leita útum allt og finna staði sem hefðu áhuga á að hafa barcraft á Íslandi. Hingað til hef ég fundið einn stað sem hefur áhuga á að halda þetta. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Þeir hafa boðið mér 120 manna sal með þægilegum sætum og munu í framtíðinni ef fjölsótt er í þetta bjóða okkur mötuneytið í skólanum undir þetta sem hýsir mun fleiri.

Þannig ég spyr ykkur, hversu margir mynduð þið ætla að mæta í svona barcraft? Munið að það er alltaf hægt að draga vin með sem hefur áhuga en hefur aldrei komið sér inn í þetta, þá eru strax komnir tvöfaldur fjöldi Eða jafnvel draga vin með sem hefur engann áhuga og kveikja í honum starcraft neistann.

Ég spurði ekki hvort að drykkja væri leyfileg en þar sem að þetta er skólahúsnæði þá ætla á ég að búast við því að það sé ekki leyfilegt. Ég spyr þann sem ég talaði við þegar ég tala við hann í framhaldi af þessu.

Ég myndi ákvarða eitthvað sanngjarnt verð fyrir þetta. Ég ætla líka að tala við önnur fyrirtæki í sambandi við nammi og gos á staðnum.

TL:DR Fann húsnæði fyrir barcraft sem hýsir 120 manns, hversu margir myndu mæta? Möguleiki á stærra húsnæði ef áhugi er mikill

Takk fyrir mig.
bennni