Hef áhuga á að koma af stað clani í Starcraft 2. Ástæðan fyrir því er margþætt. Ég persónulega held að maður sé að fá meira út úr því að æfa með fólki sem maður getur verið í sambandi við day to day og talað sig saman um builds og þess háttar heldur en að spila endalausa ladder leiki. Einnig þá er alltaf gaman að vera hluti af liði og geta myndað smá comunity í kringum leikinn.

Ég er ekki endilega að aima á masters spilara þar sem ég er ekki masters spilari sjálfur. Heldur langar mig kanski að safna saman spilurum sem eru við það að koma í masters og hafa nálægt því að gera það gott á íslensku mótunum en aðeins munað herslumuninum.

Ég stefni á að búa til smá í kringum clanið bæði með að casta leikjum með stream og einnig að fá replay hjá members og uploada með casting á youtube.

Ég hef viðrað hugmyndina við nokkra sponsers og þeir hafa tekið vel í þetta en það fer í rauninni bara eftir því hvernig mun ganga að koma claninu á framfæri og hvort menn taka vel í hugmyndina.

Ég hef einnig tengsl við nokkur clön úti þannig við munum stefna á að taka battle við nokkur erlend clön.

Þeir sem hafa áhuga endilega pm mig hérna með upplýsingum um sjálfa sig
Nafn
Aldur
Starf/nemi

Nick in game
ID:
Race:
Styrkleikar í spilun:
Veikleikar í spilun:
Hvað er þitt besta matchup:
Þitt versta matchup:

Endilega hafið samband ef þið viljið vera hluti af því að koma af stað nýju og active clani.

Bætt við 11. júlí 2011 - 16:38
Er að hugsa um að taka inn platinum og ofar en mun skoða gold jafnvel silver ef ég sé eitthvað í spilaranum sem mér finnst promising.