Næturvaktin var stofnuð í The Burning Crusade, á því tímabili sem var verið að sýna Næturvaktina í sjónvarpinu. Þá voru þetta um 14 náungar sem þekktust allir utan Warcraft. Stefnan var tekin á að gera 10 manna dungeon, og var á þeim tíma einungis til Karazhan sem allir fengu á endanum hundleið af. Seinna kom svo Zul'Aman sem við reyndar kíktum einu sinni í og drápum einhver tvö tröll eða svo. Núna er um helmingur af guildinu ekki að spila og kemur ekki til með að spila næstu misseri. Því höfum við ákveðið að opna fyrir recruitment, vegna þess að við erum búnir að fá okkur fullsadda af pugs. Margir okkar voru að rerolla, til þess að hafa sterkari kjarna classlega séð, og höfum við verið að dinga 80 og farma gear undanfarnar vikur. Við komum þó til með því að byrja á Naxxramas og sjá hvernig það gengur. Það þýðir ekkert að hoppa beint í Trial of the Grand Crusader bara til þess að wipa og eyðileggja móralinn. Vonumst þó til þess að cleara það mjög fljótlega, bæði til að byggja móral og færa okkur yfir í nýtt content.

Andinn í guildinu hefur verið að skemmta sér sem mest, bæði ingame og í alvörunni. Við prófuðum eitt skiptið að gera Gruul og fannst það ekkert skemmtilegt, stefnan er því alls ekki tekin á 25 manna raids, en fólki er að sjálfsögðu guðvelkomið að pugga það. Við erum að miða á þéttan hóp sem þekkist vel, spilar vel saman og skemmtir sér í raids. Fæstir okkar hafa gaman af heilalausu grindi og erum við ekki að búast við því að fólk mæti með 200 flasks og pots og mat í hvert einasta raid. Það er þó alls ekkert illa séð.

Það sem við búumst við af members er fyrst og fremst almennilegheit. Við búumst einnig við því að fólk kunni að gemma, glypha og talenta, eða sé tilbúið að spyrja spurninga og kynna sér málið. Að gera bara eitthvað er frekar heimskulegt. Við viljum ekki heimskulega members. Við búumst einnig sterklega við því að fólk mæti í öll raids nema eitthvað komi uppá. Þess vegna miðum við á að hafa ekki mikið fleiri en 12-13 aktíva members, því það er hundleiðinlegt að skilja útundan.

Við notum ekki neitt forum, það er vita gagnslaust fyrir 10 manna guild. Við komum heldur ekki til með að nota neitt dkp. Við verðum svo fáir að /roll ætti að skipta gear niður nokkuð jafnt. Það eru þó ákveðnar loot reglur, til dæmis ef Alli fær eitt item, þá passar hann á því næsta svo að Bjarni fái líka item. Svona UBRS fílingur í gangi.

Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við einhvern officer í guildinu;
Fullur, Mogwaii, Bishup, Ármann.


Upplýsingar um raid tíma og hvaða classa vantar er að finna hérna.

Application template sem sendist í email er síðan að finna hérna. (hægri klikk og save as)

kv,
smeppi
indoubitably