Ég var að byrja að spila í vikunni.

Ég á Orc Warrior sem er kominn á level 19 núna og tæplega 26 gull sem ég fékk með því að selja drasl frá mining og skinning skillunum á auction house.

Ég hef aldrei trade-að við neinn, nema þegar ég tók við tveimur gullpeningum fyrir að sign-a guild charter fyrir einhvern gaur.

Núna er allt í einu búið að banna accountinn minn.

Af hverju?

Type of Violation: Involvement in online trading activities

“Online trading refers to the exchange of in-game content for real world money, and includes, but is not limited to, the sale or purchase of gold, the sale or purchase of experience in the form of powerlevelling, and the sale or purchase of honor points, reputation or items.”

Einhver sem hefur lent í þessu?

Ég meina come on… ég á TUTTUGU OG SEX GULL!